Uppsetning tölvupósts
Notaðu tölvupóstsforritið í tækinu til að senda og taka á móti tölvupósti í gegnum
tölvupóstsreikningana þína. Þú getur notað einn eða fleiri tölvupóstsreikninga
samtímis, þ. á m. Microsoft Exchange ActiveSync reikninga fyrir fyrirtæki.
Uppsetning á pósthólfi
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á Tölvupóstur.
3
Fylgdu leiðbeiningunum sem birtast á skjánum til að ljúka uppsetningunni.
Fyrir sumar tölvupóstsþjónustur getur verið að þú þurfir að hafa samband við
tölvupóstsþjónustuveituna fyrir upplýsingar um nánari stillingar fyrir pósthólfið.
Öðrum tölvupóstsreikningi bætt við
1
Á Heimaskjár, pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á Tölvupóstur.
3
Ef þú ert að nota fleiri tölvupóstsreikninga pikkarðu á og síðan Bæta við
reikningi
.
4
Sláðu inn netfangið og lykilorðið, pikkaðu síðan á Næsta. Ef ekki er hægt að
hlaða niður stillingunum fyrir pósthólfið sjálfkrafa lýkurðu við uppsetninguna
handvirkt.
5
Þegar um það er beðið slærðu inn nafn fyrir pósthólfið svo það sé
auðkennanlegt.
6
Þegar því er lokið pikkarðu á Næsta.
Pósthólf stillt sem sjálfgefinn reikningur
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á Tölvupóstur.
3
Ýttu á og pikkaðu svo á Stillingar.
4
Veldu reikninginn sem þú vilt nota sem sjálfgefinn reikning til að semja og senda
tölvupóst.
5
Merktu við gátreitinn Sjálfgefið pósthólf. Innhólfið á sjálfgefna reikningnum
birtist í hvert sinn sem þú opnar tölvupóstsforritið.
Ef þú hefur aðeins einn tölvupóstsreikning þá er sá reikningur sjálfkrafa sjálfgefinn reikningur.