Upplýsingum um staðsetningu bætt við myndir
Kveiktu á landmerkingu til að bæta grófri staðsetningu (landmerki) við myndir þegar þú
tekur þær. Landfræðileg staðsetning er ákvörðuð annað hvort eftir þráðlausu kerfi
(farsíma eða Wi-Fi®) eða með GPS-tækni.
Þegar birtist á skjá myndavélarinnar er kveikt á landmerkingu en staðsetning hefur
ekki fundist. Þegar birtist er kveikt á landmerkingu og staðsetning er þekkt, þannig
að hægt er að landmerkja myndina. Slökkt er á landmerkingu ef hvorugt táknið sést.
Kveikt á landmerkingu
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Pikkaðu á Stillingar > Staðsetningarþjónusta.
3
Dragðu rennitakkann við hliðina á Aðgangur að minni staðsetningu til hægri.
4
Kveiktu á myndavélinni.
5
Pikkaðu á og svo á .
6
Dragðu rennitakkann við hliðina á Hnitamerking til hægri.
7
Pikkaðu á Í lagi.