Sony Xperia SP - Myndavélarstillingar

background image

Myndavélarstillingar

Til að stilla myndavélastillingar

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Pikkaðu á til að birta allar stillingar.

3

Veldu stillinguna sem þú vilt breyta og breyttu að vild.

Yfirlit yfir stillingar myndavélar

Upplausn

Veldu á milli mismunandi myndastærða og hlutfalla áður en þú tekur mynd. Mynd með

meiri upplausn þarf meira minni.

3264×2448(4:3)

8 megapixla mynd í hlutföllunum 4:3. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á venjulegum skjá eða prenta í

mikilli upplausn.

3104×1746(16:9)

5 megapixla mynd í hlutföllunum 16:9. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á venjulegum skjá eða prenta í

mikilli upplausn.

1632×1224(4:3)

2 megapixla mynd í hlutföllunum 4:3. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á venjulegum skjá.

1920×1080(16:9)

68

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

2 megapixla mynd í hlutföllunum 16:9. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á víðskjá.

Sjálfvirk tímastilling

Með tímastillingunni er hægt að taka mynd án þess að halda á tækinu. Notaðu þennan

eiginleika til að taka sjálfsmyndir eða hópmyndir þar sem allir geta verið á myndinni.

Þú getur einnig notað tímastilli til að forðast að myndavélin hristist við myndatöku.

Kveikt (10 sek.)

Veldu 10 sekúndna bið frá því að pikkað er á myndavélarskjáinn þar til að myndin er tekin.

Kveikt (2 sek.)

Veldu 2 sekúndna bið frá því að pikkað er á myndavélarskjáinn þar til að myndin er tekin.

Slökkt

Mynd er tekin um leið og þú pikkar á myndavélarskjáinn.

Smile Shutter™

Notaðu eiginleikann Smile Shutter™ til að ákveða hvernig brosi myndavélin bregst við

áður en mynd er tekin.

Fókusstilling

Fókuseiginleikinn stjórnar því hvaða hluti myndarinnar á að vera skarpur. Þegar kveikt

er á samfelldum sjálfvirkum fókus stillir myndavélin stöðugt fókus til að svæðið innan

gula fókusrammans haldi skerpu sinni.

Stakur sjálfv. fókus

Myndavélin stillir sjálfkrafa fókus á valið myndefni. Kveikt á samfelldum sjálfvirkum fókus. Styddu á

myndavélarskjáinn þangað til guli fókusramminn verður blár, sem bendir á að fókusinn sé stilltur. Myndin

er tekin þegar þú tekur fingurinn af.

Margfaldur sjálfv. fókus

Fókus er sjálfkrafa stilltur á nokkur svæði á myndinni. Styddu á myndavélarskjáinn þangað til guli

fókusramminn verður blár, sem bendir á að fókusinn sé stilltur. Myndin er tekin þegar þú tekur fingurinn af.

Slökkt á samfelldum sjálfvirkum fókus.

Andlitsgreining

Myndavélin nemur sjálfkrafa allt að fimm mannsandlit og birtist rammi utan um þau í myndglugganum.

Myndavélin stillir sjálfkrafa fókus á andlitið sem er næst. Einnig er hægt að velja hvaða andlit á að stilla

fókus á með því að pikka á það á skjánum. Þegar þú pikkar á myndavélarskjáinn sýnir bláan ramma

hvaða andlit er valið og í fókus. Ekki er hægt að nota andlitsgreiningu í öllum umhverfisstillingum. Kveikt á

samfelldum sjálfvirkum fókus.

Snertifókus

Snertu svæði á myndavélarskjánum til að stilla fókus á það. Slökkt á samfelldum sjálfvirkum fókus. Styddu

á myndavélarskjáinn þangað til guli fókusramminn verður blár, sem bendir á að fókusinn sé stilltur. Myndin

er tekin þegar þú tekur fingurinn af.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni Handvirkt.

ISO

Þú getur dregið óskýrleika sem stafar af slæmum lýsingarskilyrðum og hreyfingu á

myndefni með því að auka ISO-næmi.

Sjálfvirkt

Stillir ISO-næmi sjálfkrafa.

100

Stillir ISO-næmi í 100.

200

Stillir ISO-næmi í 200.

400

Stillir ISO-næmi í 400.

800

69

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Stillir ISO-næmi í 800.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni Handvirkt.

Mæling

Þessi eiginleiki ákvarðar sjálfkrafa rétta lýsingu með því að mæla magn ljóssins í

mynd sem á að taka.

Miðjun

Stillir lýsingu á miðju myndarinnar.

Meðaltal

Reiknar út lýsingu samkvæmt magni ljóssins á allri myndinni.

Punktur

Stillir lýsingu á mjög litlum hluta myndarinnar sem á að taka.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni Handvirkt .

Hristivörn

Erfitt getur reynst að halda tækinu kyrru við myndatöku. Hristivörnin dregur úr áhrifum

vegna smávægilegra hreyfinga handarinnar.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni Handvirkt .

Forskoðun

Þú getur valið að forskoða myndir eða myndskeið sem þú hefur nýlokið við að taka.

Ótakmarkað

Þegar þú hefur tekið mynd eða myndskeið birtist forskoðunin.

5 sekúndur

Forskoðunin á myndinni eða myndskeiðinu sést í 5 sekúndur að töku lokinni.

3 sekúndur

Forskoðunin á myndinni eða myndskeiðinu sést í 3 sekúndur að töku lokinni.

Breyta

Að töku lokinni opnast myndin eða myndskeiðið svo hægt sé að gera breytingar.

Slökkt

Myndin eða myndskeiðið vistast að töku lokinni og engin forskoðun birtist.

Flass

Notaðu flassið til að taka myndir þegar lýsing er léleg eða myndefni er baklýst.

Eftirfarandi valmöguleikar standa til boða þegar þú pikkar á flasstáknið á

myndavélarskjánum:

Sjálfvirkt

Myndavélin velur sjálfkrafa hvort lýsingaraðstæður kalla á notkun flass.

Fylliflass

Notaðu þessa stillingu þegar bakgrunnurinn er bjartari en myndefnið. Þannig er komið í veg fyrir

óæskilega dökka skugga.

Laga rauð augu

Dregur úr rauðum lit í augum þegar tekin er mynd.

Slökkt

Slökkt er á flassinu. Stundum geta myndgæði verið betri án flass, jafnvel þótt birtuskilyrði séu léleg.

Stöðug hönd er forsenda töku góðra mynda án flass. Notaðu tímastillingu til að forðast að myndir

verði óskýrar.

Vasaljós

Þegar þú tekur myndir kviknar á myndavélarljósi.

70

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.