Sony Xperia SP - Staðsetningarþjónusta og valkostir

background image

Staðsetningarþjónusta og valkostir

Notaðu tækið til að staðsetja þig. Það eru tvær aðferðir eða valkostir: GPS (Global

Positioning System) og þráðlaus netkerfi. Kveiktu á þráðlausa netkerfinu (Wi-Fi og

farsímakerfi) ef þú þarft aðeins grófa staðsetningu og liggur á að fá hana. Ef þú vilt fá

nákvæmari staðsetningu og þú hefur beina augsýn að himninum skaltu kveikja á GPS

(Global Positioning System) valkostinum. Í aðstæðum þar sem þráðlaus nettenging er

lítil skaltu kveikja á báðum valkostunum til að tryggja að hægt sé að finna staðsetningu

þína. Báðir valkostirnir virkjast sjálfkrafa þegar þú kveikir á staðsetningarþjónustunni.

Sony tekur enga ábyrgð á nákvæmni svæðisþjónustu, þar með talið, en ekki eingöngu

leiðsagnarþjónustum.

Staðsetningarþjónusta virkjuð

1

Dragðu stöðustikuna niður og pikkaðu svo á .

2

Pikkaðu á Staðsetningarþjónusta.

3

Dragðu rennitakkann við hliðina á Aðgangur að minni staðsetningu til hægri.

4

Pikkaðu tvisvar á Samþykkja til að staðfesta.

Þegar þú virkjar staðsetningarþjónustu virkjast bæði GPS-gervitungl og

Staðsetningarþjónusta Google (Wi-Fi og farsímakerfi) sjálfkrafa. Þú getur afvirkjað báða

valkosti handvirkt.

Google-forritum veitt aðgengi að staðsetningu þinni

1

Dragðu stöðustikuna niður og pikkaðu svo á .

2

Pikkaðu á Google > Staðsetningarstillingar.

3

Dragðu rennitakkann við hliðina á Google-forrit sjá staðsetningu þína til hægri.

Þú þarft að hafa skráð þig inn á Google™ reikninginn þinn ti lað geta notað

staðsetningarþjónustu.