Staða og tilkynningar
Stöðustikan efst á skjánum birtir það sem er að gerast í tækinu. Til vinstri færðu
tilkynningar um eitthvað nýtt eða yfirstandandi. Til dæmis birtast ný skilaboð og
dagbókartilkynningar hér. Hægra megin sést sendistyrkur, staða rafhlöðu og aðrar
upplýsingar.
Stöðustikann leyfir þér að stilla grunnstillingar á tækinu þínu, til dæmis Wi-Fi®,
Bluetooth™, gagnaumferð og hljóð. Þú getur opnað stillingarvalmynd frá
tilkynningaspjaldinu til að breyta öðrum stillingum.
Tilkynningaljós veitir einnig upplýsingar um stöðu rafhlöðunnar og nokkrar tilkynningar.
Til dæmis þýðir blikkandi blátt ljós nýtt skeyti eða ósvarað símtal. Tilkynningaljósið
virkar hugsanlega ekki þegar lítil hleðsla er á rafhlöðunni.
Athuga tilkynningar og viðvarandi starfsemi
Þú getur dregið niður stöðustikuna til að opna tilkynningarspjaldið og fengið fleiri
upplýsingar. Þú getur til dæmis opnað ný skilaboð eða skoðað dagbókarviðburð af
spjaldinu. Einnig getur þú opnað sum forrit sem keyra í bakgrunni, á borð við
tónlistarspilarann.
23
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Tilkynningasvæðið opnað
•
Dragðu stöðustikuna niður.
Til að loka tilkynningarsvæðinu
•
Dragðu flipann neðst á tilkynningarsvæði upp.
Brugðist við tilkynningu
•
Pikkaðu á tilkynninguna.
Til að hafna tilkynningu af Tilkynningaskjánum
•
Styddu fingri á tilkynningu og ýttu henni til vinstri eða hægri.
Til að hreinsa allar tilkynningar af tilkynningaskjánum
•
Pikkaðu á Hreinsa.
Tækið stillt úr tilkynningaskjánum
Þú getur opnað stillingarvalmynd úr tilkynningaskjánum til að breyta flýtistillingum
tækisins. Til dæmis geturðu kveikt á Wi-Fi
®
.
Til að opna stillingavalmynd tækisins af tilkynningaspjaldi
1
Dragðu stöðustikuna niður á við.
2
Pikkaðu á .
Hljóðstillingar stilltar frá tilkynningaspjaldinu
1
Dragðu stöðustikuna niður á við.
2
Pikkaðu á .
24
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Bluetooth
®
eiginleikanum stjórnað af tilkynningaskjánum
1
Dragðu stöðustikuna niður.
2
Pikkaðu á .
Til að stjórna Wi-Fi® valkostinum frá tilkynningarspjaldinu
1
Dragðu stöðustikuna niður á við.
2
Pikkaðu á .
Birtustig stillt frá tilkynningasvæðinu
1
Dragðu stöðustikuna niður.
2
Pikkaðu á .
Flýtistillingar sérstilltar á tilkynningaskjá
Þú getur sérstillt flýtistillingar á tilkynningasskjánum með því að velja þær flýtistillingar
sem þú vilt og endurraða þeim. Þú getur valið allt að 10 flýtistillingar og þú getur líka
sleppt að velja nokkra þeirra.
Flýtistillingar valdar á tilkynningasvæði
1
Dragðu stöðustikuna niður og pikkaðu svo á .
2
Finndu og pikkaðu á Skjár > Flýtistillingar.
3
Veldu flýtistillinguna sem þú vilt.
Flýtistillingum endurraðað úr tilkynningasvæði
1
Dragðu stöðustikuna niður og pikkaðu svo á .
2
Finndu og pikkaðu á Skjár > Flýtistillingar.
3
Haltu inni við hliðina á flýtistillingu og færðu það svo þangað sem þú vilt.