Sony Xperia SP - Stýra gagnanotkun

background image

Stýra gagnanotkun

Þú getur fylgst með magni gagna sem er flutt í eða úr tækinu þínu yfir farsímagögn

eða Wi-Fi® tengingu yfir gefið tímabil. T.d. getur þú skoðað magn gagna sem er notað

af sérhverju forriti. Þú getur einnig stillt viðvörun gagnanotkunar og takmörkun til þess

að forðast aukagjald fyrir flutning gagna í gegnum farsímagagnatenginguna.

Stilling gagnanotkunarstillinga getur hjálpað þér að hafa meiri stjórn á gagnanotkun en getur

ekki komið í veg fyrir aukagjald.

Kveikt eða slökkt á gagnaumferð

1

Dragðu stöðustikuna niður á við og pikkaðu svo á .

2

Pikkaðu á Gagnanotkun.

3

Dragðu sleðann við hliðina á Farsímagagnaumferð til að kveikja eða slökkva á

gagnaumferð.

Þegar slökkt er á gagnaumferð getur tækið þitt samt notað Wi-Fi® og Bluetooth®

tengingarnar.

Til að stilla viðvörun gagnanotkun

1

Gakktu úr skugga um að kveikt sé á gagnaumferð.

2

Dragðu stöðustikuna niður á við og pikkaðu svo á .

3

Finndu og pikkaðu á Gagnanotkun.

4

Til að stilla viðvörunarstigið, dregurðu viðvörunarlínuna á valið gildi. Þú færð

viðvörunartilkynningu þegar magn gagnaumferðar nálgast stiginu sem þú hefur

stillt.

Til að stilla takmörk gagnanotkunar

1

Gakktu úr skugga um að kveikt sé á gagnaumferð.

2

Dragðu stöðustikuna niður á við og pikkaðu svo á .

3

Finndu og pikkaðu á Gagnanotkun.

4

Merktu við Velja hámark farsímagagna gátreitinn ef hann er ekki merktur,

pikkaðu síðan á Í lagi.

5

Dragðu samsvarandi línu á valið gildi til að stilla takmörk gagnanotkunar.

Þegar gagnanotkun nær stilltu takmarki, slekkur gagnaumferð í tækið sjálfkrafa á sér.

Til að stjórna gagnanotkun sérhverra forrita

1

Dragðu stöðustikuna niður á við og pikkaðu svo á .

2

Finndu og pikkaðu á Gagnanotkun.

3

Finndu og pikkaðu á viðeigandi forrit.

4

Merktu við gátreitinn Takmarka bakgrunnsupplýsingar.

5

Til að fá aðgang að sérstakari stillingum fyrir forritið (ef það er til staðar)

pikkarðu á Skoða forritsstillingar og gerir viðeigandi breytingar.

Ef þú breytir tengdum stillingum fyrir gagnanotkun getur það haft áhrif á vinnslu viðeigandi

forrita.

Til að skoða gagnaflutning með Wi-Fi®

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Gagnanotkun.

3

Pikkaðu á , merktu síðan við Sýna Wi-Fi-notkun gátreitinn ef hann er ekki

merktur.

4

Pikkaðu á Wi-Fi-flipann.