Sony Xperia SP - Heimaskjár

background image

Heimaskjár

Heimaskjárinn er upphafsstaður tækisins. Hægt er að sérstilla hann með forritum,

græjum, flýtileiðum, möppum, þemum og veggfóðri. Þú getur einnig bætt við extra

gluggum.
Heimaskjárinn nær út fyrir venjulega skjábreidd og því þarftu að fletta til vinstri eða

hægri til að skoða efni í öllum gluggum heimaskjásins.

sýna í hvaða hluta heimaskjásins þú ert. Þú getur stillt glugga sem aðalglugga

heimaskjás og bæta við eða eyða gluggum.

Til að opna heimaskjáinn

Ýttu á .

Til að skoða heimaskjáinn

Flettu til hægri eða vinstri.

18

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Skjár stilltur sem aðalheimaskjárinn

1

Ýttu á og haltu inni auðu svæði á Heimaskjár þar til tækið titrar.

2

Flettu til vinstri eða hægri til að komast að skjánum sem þú vilt stilla sem

heimaskjáinn þinn, pikkaðu síðan á .

Rúðu bætt við heimaskjáinn þinn

1

Haltu inni tómu svæði á Heimaskjár þangað til tækið titrar.

2

Flettu til vinstri eða hægri til að skoða rúðurnar, pikkaðu síðan á .

Glugga eytt af heimaskjánum þínum

1

Haltu auðu svæði inni á Heimaskjár þangað til tækið titrar.

2

Flettu til vinstri eða til hægri til að fletta að glugganum sem þú vilt eyða, pikkaðu

síðan á .

Græjur

Græjur eru lítil forrit sem þú getur notað beint á Heimaskjár. Til dæmis gerir “

WALKMAN” græjan þér kleift að spila tónlist beint.
Hægt er að breyta stærð á sumum græjum, svo þú getur aukið þær til að skoða meira

efni eða minnka þær til að spara rými á Heimaskjár.

Græju bætt við heimaskjáinn

1

Haltu inni tómu svæði á Heimaskjár þangað til tækið titrar pikkaðu síðan á

Græjur

.

2

Finndu og pikkaðu á græju sem þú vilt bæta við.

Breyta stærð græju

1

Haltu inn græju þangað til hún stækkar og tækið titrar, slepptu síðan græjunni.

Ef hægt er að breyta stærð græjunnar, til dæmis dagbókargræjuna, yfirlýst þá

ramma og endurstækkaðir blettir birtast.

2

Dragðu blettina inn eða út til að minnka eða stækka græjuna.

3

Pikkaðu hvar sem er á Heimaskjár til að staðfesta nýja stærð græjunnar.

Endurraðað á heimaskjánum

Veldu útlit heimaskjásins og veldu hvaða eiginleika er hægt að opna á honum. Breyttu

bakgrunni skjásins, færðu hluti til, búðu til möppur og settu inn flýtileiðir og græjur.

Aðlögunarvalkostir

Þegar þú heldur inni tómu svæði á heimaskjánum birtast eftirfarandi

aðlögunarvalkostir:

Bættu við græjum á heimaskjáinn þinn.
Bættu við forritum og flýtileiðum.
Notaðu veggfóður á heimaskjáinn þinn.
Notaðu bakgrunnsþema.

Sérsniðnir valkostir skoðaðir á heimskjánum

Haltu auðu svæði inni á Heimaskjár þangað til tækið titrar og

aðlögunarvalkostur birtist neðst á skjánum.

19

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Flýtileið bætt við heimaskjáinn

1

Ýttu á og haltu inni auðu svæði á Heimaskjár þar til tækið titrar og

sérsniðsvalmyndin birtist.

2

Á sérsniðsvalmyndinni skaltu pikka á Forrit.

3

Flettu í gegnum forritalistann og veldu forrit. Forritinu sem þú velur verður bætt

við Heimaskjár.

Í skrefi 3 geturðu einnig pikkað á Flýtileiðir og valið svo forrit úr listanum. Ef þú notar þessa

aðferð við að bæta við flýtileiðum bjóða sum forrit upp á að tiltekinni virkni sé bætt við

flýtileiðina.

Hlutur færður á heimaskjáinn

Styddu á hlutinn þangað til hann stækkar og tækið titrar, dragðu þá hlutinn á

nýja staðinn.

Til að eyða hlut af heimaskjánum

Haltu inni hlutnum þangað til hann stækkar og tækið titrar, dragðu þá hlutinn að

.

Mappa búin til á heimaskjánum

Haltu inni forritatákninu eða flýtileið þangað til það stækkar og tækið titrar,

dragðu síðan og slepptu því ofan á annað forritatákn eða flýtileið.

Hlutum bætt við í möppu á heimaskjánum

Snertu og haltu inni hlutnum þangað til hann stækkar og tækið titrar, dragðu þá

hlutinn að möppunni.

Heiti möppu breitt á heimaskjánum

1

Pikkaðu á möppuna til að opna hana.

2

Pikkaðu á titilstiku möppunnar til að birta reitinn Heiti möppu.

3

Sláðu inn nýtt möppuheiti og pikkaðu á Lokið.

Bakgrunni heimaskjásins breytt

Hafðu Heimaskjár eftir þínu höfði, með mismunandi veggfóðrum og þemum.

Veggfóðri heimaskjás breytt

1

Ýttu á og haltu inni auðu svæði á Heimaskjár þar til tækið titrar.

2

Pikkaðu á Veggfóður og veldu valkost.

Þema stillt fyrir heimaskjáinn

1

Haltu auðu svæði inni á Heimaskjár þangað til tækið titrar.

2

Pikkaðu á Þemu og veldu síðan þema.

Þegar þú skiptir um þema, breytist bakgrunnurinn í sumum forritum.