Sony Xperia SP - Aðlagaðu tækið þitt

background image

Aðlagaðu tækið þitt

Þú getur stillt nokkrar tækjastillingar sem passar við þarfir þínar. Til dæmis getur þú

breytt tungumálinu, bætt persónulegum hringtóni við eða breytt birtustigi skjásins.

Stilling hljóðstyrks

Hægt er að stilla hljóðstyrk hringingar fyrir móttekin símtöl og tilkynningar sem og fyrir

tónlist og myndskeið.

Til að stilla hljóðstyrk hringingar með hljóðstyrkstakkanum

Ýttu hljóðstyrkstakkanum upp eða niður.

Til að stilla hljóðstyrk spilarans með hljóðstyrkstakkanum

Þegar tónlist er spiluð eða horft á myndskeið er hljóðstyrkstakkanum ýtt upp

eða niður.

Stilla hljóðstillingar

Þú getur stillt nokkrar hljóðstillingar. Til dæmis, getur þú stillt tækið á hljóðlausa

stillingu þannig að það hringir ekki þegar þú ert á fundi.

Tækið stillt á titring

Haltu hljóðstyrkstakkanum aftur inni. táknið birtist á stöðustikunni.

Tækið sett í hljóðlausa stillingu

1

Haltu inni hljóðstyrkstakkanum þar til tækið byrjar að titra og birtist á

stöðustikunni.

2

Haltu hljóðstyrkstakkanum aftur inni. táknið birtist á stöðustikunni.

Tækið stillt á titring og hringingu

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Hljóð.

3

Merktu við Titra þegar hringt er gátreitinn.

Dagsetning og tími

Þú getur breytt dagsetningu og tíma í tækinu.

29

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Dagsetning stillt handvirkt

1

Á Heimaskjár, pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Dagsetning & tími.

3

Afmerktu gátreitinn Sjálfvirk tímastilling, ef hann er merktur.

4

Bankaðu á Dagsetning.

5

Breyttu dagsetningunni með því að fletta upp og niður.

6

Bankaðu á Velja.

Tími valinn handvirkt

1

Á Heimaskjár, pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Dagsetning & tími.

3

Afmerktu gátreitinn Sjálfvirk tímastilling ef merkt er við hann.

4

Bankaðu á Stilla tíma.

5

Flettu upp eða niður til að stilla klukkutíma og mínútu.

6

Flettu upp til að breyta F.H. til að E.H., eða öfugt ef hægt er.

7

Bankaðu á Velja.

Til að stilla tímabelti

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Dagsetning & tími.

3

Afmerktu gátreitinn Sjálfvirkt tímabelti ef hann er merktur.

4

Pikkaðu á Velja tímabelti.

5

Veldu valkost.

Stillingar hringitóna

Hringitónn valinn

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Hljóð > Hringitónn síma.

3

Veldu hringitón.

4

Pikkaðu á Lokið.

Til að kveikja á snertitónum

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Hljóð.

3

Merktu við gátreitina Snertitónar á takkaborði og Snertihljóð.

Tilkynningarhljóð valið

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Hljóð > Tilkynningarhljóð.

3

Veldu hljóðið sem á að spilast þegar tilkynning kemur.

4

Pikkaðu á Lokið.

Skjástillingar

Til að stilla birtustig skjásins

1

Á heimaskjánum pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Skjár > Skjábirta.

3

Afmerktu gátreitinn Aðlagast birtuskilyrðum ef merkt er við hann.

4

Dragðu sleðann til að stilla birtustigið.

Lækkun birtustigs eykur afköst rafhlöðunnar.

Skjárinn stilltur svo hann titri við snertingu

1

Dragðu stöðustikuna niður og pikkaðu svo á > Hljóð.

2

Merktu við gátreitinn Titra við snertingu. Nú titrar skjárinn þegar þú pikkar á

valtakka og viss forrit.

30

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Til að stilla biðtímann áður en slokknar á skjánum

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Skjár > Orkusparnaður.

3

Veldu valkost.

Til að slökkva á skjánum á skjótan hátt ýtirðu í stutta stund á rofann .

Tungumálastillingar

Þú getur valið sjálfgefið tungumál fyrir tækið þitt og breytt því aftur seinna.

Tungumálinu breytt

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Tungumál og innsláttur > Tungumál.

3

Veldu valkost.

4

Pikkaðu á Í lagi.

Ef þú velur rangt tungumál og getur ekki lesið valmyndartextana, finndu og pikkaðu á . Veldu

síðan texta við hliðina á

og veldu fyrstu færsluna í valmyndinni sem opnast. Þú getur síðan

valið tungumálið sem þú vilt.

Flugstilling

Í flugstillingu er slökkt á tengingu við símkerfi og útvarp til að hindra truflanir í

viðkvæmum tækjum. Hins vegar getur þú spilað leiki, hlustað á tónlist, horft á

myndskeið og önnur efni, svo lengi sem öll þessi efni hafa verið vistuð á minniskortið

þitt eða innri geymslunni þinni. Einnig er hægt að láta vita með hringingu, ef hún er

virkjuð.

Að kveikja á flugstillingu minnkar eyðslu rafhlöðunnar.

Kveikt á flugstillingu

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Meira....

3

Merktu við Flugstilling gátreitinn.

Þú getur einnig haldið rofanum inni og valið síðan

Flugstilling í valmyndinni sem opnast.

Hanskastilling

Í hanskastillingu geturðu verið í hönskum og farið um skjáinn á tækinu þínu. Þegar

hanskastilling er notuð birtist hringlaga bendill á skjánum þar sem snerting er skráð.

Kveikt á hanskastillingu

1

Farðu á Heimaskjár, pikkaðu á > Stillingar > Skjár og gakktu úr skugga um

að hakað sé við gátreitinn Hanskastilling.

2

Læstu skjánum á tækinu þínu.

3

Vertu í hanska.

4

Opnaðu skjáinn klædd(ur) í hanska. Nú er kveikt á hanskastillingu. Tækið

verður í hanskastillingu þar til skjárinn læsist aftur.

Næmnin veltur á stærð snertiflatarins á milli skjásins og fingursins í hanskanum sem þú notar

til að fara um skjáinn. Ef snertiflöturinn er of lítill er næmnin að sama skapi lítil og

hanskastillingin fer ekki í gang.