Sony Xperia SP - Hlustað á útvarpið

background image

Hlustað á útvarpið

FM-útvarp tækisins virkar eins og hvert annað útvarpstæki. Þú getur til dæmis leitað

að og hlustað á FM-útvarpsstöðvar og vistað þær sem uppáhald. Þú þarft að tengja

heyrnartól eða handfrjálsan búnað með snúru við tækið til að nota útvarpið. Þetta er

vegna þess að heyrnartólin virka einnig sem loftnet. Þegar slíkur búnaður hefur verið

tengdur er hægt að láta hljóð útvarpsins heyrast í hátalara tækisins ef þess er óskað.

1

Uppáhaldslisti

2

Útvarpshnappur

3

Skoða valkosti valmyndar

4

Stillingartíðni

5

Rás vistuð eða fjarlægð úr uppáhaldi

6

Stillingarrofi

7

Færa tíðnisviðið til vinstri til að leita að stöð

8

Færa tíðnisviðið til hægri til að leita að stöð

9

Vistuð uppáhaldsstöð

Hlustað á FM-útvarp

1

Tengdu höfuðtól eða heyrnartól við tækið.

2

Á Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á FM-útvarp . Tiltækar rásir birtast þegar þú flettir í

gegnum tíðnisviðið.

Þegar FM-útvarpið er ræst sjást tiltækar stöðvar sjálfkrafa. Bjóði stöð upp á RDS-upplýsingar

sjást þær örfáum sekúndum eftir að þú byrjar að hlusta á stöðina.

Flakkað á milli útvarpsstöðva

Dragðu tíðnisviðið til vinstri eða hægri.

Til að hefja nýja leit að útvarpsstöðvum

1

Þegar kveikt er á útvarpinu ýtirðu á .

2

Pikkaðu á Leita að rásum. Útvarpið leitar að heilu tíðnibili og allar stöðvar sem

eru í boði eru sýndar.

63

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Hljóð útvarps látið spilast um hátalara tækisins

1

Þegar kveikt er á útvarpinu ýtirðu á .

2

Pikkaðu á Spila í hátalara.

Til að spila hljóðið aftur í gegnum höfuð- eða heyrnartól með snúru skaltu ýta á og pikka á

Spila í heyrnartólum.

Borið kennsl á lag á FM-útvarp með því að nota TrackID™

1

Þegar lag er spilað í FM-útvarpi tækisins ýtirðu á , velur síðan TrackID™.

2

Stöðuvísir birtist með TrackID™ forritið tekur sýnishorn af laginu. Ef heppnast,

ertu kynnt(ur) útkomu lags, eða lista af mögulegum lögum.

3

Ýttu á til að fara aftur í FM-útvarpið.

TrackID™ forritið og TrackID™ þjónusta eru ekki studd í öllum löndum/svæðum eða af öllum

símkerfum og/eða þjónustuveitum á öllum svæðum.