Sony Xperia SP - Myndaalbúm

background image

Myndaalbúm

Flipinn Mín albúm í forritinu Albúm safnar saman öllum myndaalbúmunum þínum, þ. á

m. albúmum með myndum og myndskeiðum sem voru tekin með myndavélinni, auk

efnis sem þú deilir á netinu með þjónustuveitum á borð við PlayMemories, Picasa og

Facebook. Þegar þú hefur skráð þig inn í slíka þjónustu getur þú unnið með efnið,

skrifað athugasemdir við myndir og myndskeið og séð athugasemdir frá vinum. Í

forritinu Albúm getur þú líka bætt landmerkjum við myndir, gert einfaldar breytingar og

notað þráðlausa Bluetooth® tækni, tölvupóst, spjall og fleira til að deila efni.

76

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

1

Skoða myndir og myndskeið með vefþjónustunni PlayMemories

2

Skoða myndir og myndskeið á Facebook™.

3

Skoða myndir og myndskeið í Picasa™

4

Skoða myndir með vefþjónustunni Flickr™

5

Skoða allar myndir og myndskeið úr myndavélinni í tækinu

6

Skoða allar myndir og myndskeið sem eru vistuð á innri geymslu tækisins

7

Skoða myndirnar þínar í hnattstillingu

8

Skoða myndir á korti

9

Skoða allar myndir og myndskeið sem eru vistuð á minniskortinu

10 Skoða allar myndir með andlitum

PlayMemories vefþjónustan er ekki í boði í öllum löndum eða svæðum.

Myndir skoðaðar á netinu í albúmum

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Albúm > Albúmin mín.

3

Pikkaðu á netþjónustu.

4

Pikkaðu á Tengjast. Öll tiltæk netalbúm sem þú sendir á þjónustuna koma upp.

5

Pikkaðu á eitthvert albúm til að skoða innihaldið, pikkaðu síðan á mynd í

albúminu.

6

Flettu til vinstri til að skoða næstu mynd eða myndskeið. Flettu til hægri til að

skoða myndina eða myndskeiðið á undan.

Athugasemdir skoðaðar og bætt við á albúmsefni á netinu

1

Þegar mynd er skoðuð úr albúmi á netinu skaltu pikka á skjáinn til að birta

tækjastikurnar, pikkaðu síðan á til að skoða athugasemdir.

2

Færðu þínar athugasemdir inn í innsláttarreitinn og pikkaðu síðan á Birta.

Til að „Líka við“ mynd eða myndskeið á Facebook™

Á meðan mynd eða myndskeið er skoðað úr einu af albúmunum þínum á

Facebook™, pikkaðu á skjáinn til að sýna tækjastikurnar og pikkaðu svo á til

að sýna að þér „Líki við" hlutinn á Facebook™.