Sony Xperia SP - Að skoða myndir og myndskeið

background image

Að skoða myndir og myndskeið

Notaðu flipann Myndir í forritinu Albúm til að skoða myndir og spila myndskeið sem þú

tókst með myndavélinni eða til að skoða svipað efni sem þú hefur vistað í tækinu. Allar

myndir og myndskeið birtast í töflu og er raðað í tímaröð.

1

Skoðaðu myndir og myndskeið í flipanum Myndir

2

Skoðaðu myndir og myndskeið í flipanum Mín albúm

3

Skoðaðu valkosti valmyndar

4

Dagsetning hlutanna í hópnum

5

Pikkaðu á mynd eða myndskeið til að skoða

6

Flettu upp eða niður til að skoða efni

Ljósmyndir og myndskeið skoðuð

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Albúm.

3

Pikkaðu á mynd eða myndskeið til að skoða.

4

Flettu til vinstri til að skoða næstu mynd eða myndskeið. Flettu til hægri til að

skoða myndina eða myndskeiðið á undan.

Ef stefna skjásins breytist ekki sjálfkrafa þegar þú snýrð tækinu á hlið merkirðu við gátreitinn

Snúa skjá sjálfkrafa undir Stillingar > Skjár.

Stærð smámynda breytt

Þegar smámyndir mynda og myndskeiða eru skoðaðar í albúmi skaltu glenna

tvo fingur í sundur til að auka aðdrátt, eða klípa tvo fingur saman til að minnka

aðdrátt.

Aðdráttur notaður á mynd

Þegar þú ert að skoða mynd glennir þú tvo fingur í sundur til að auka aðdrátt, eða

klípur tvo fingur saman til að minnka aðdrátt.

Myndir sýndar í skyggnusýningu

1

Þegar þú skoðar mynd pikkarðu á skjáinn til að birta tækjastikur, pikkaðu síðan

á > Skyggnusýning til að byrja að spila myndir í albúminu.

2

Pikkaðu á mynd til að ljúka skyggnusýningunni.

73

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Myndir sýndar með tónlist í skyggnusýningu

1

Þegar þú ert að skoða mynd, pikkaðu á skjáinn til að birta tækjastikur, pikkaðu

síðan á > SensMe™ slideshow.

2

Veldu tónlistina og þema sem þú vilt nota fyrir skyggnusýningu, pikkar síðan á

. Albúmsforritið greinir myndirnar þínar og notar SensMe™ tónlistargögn til að

spila skyggnusýningu.

3

Til að gera hlé á spiluninni pikkarðu á skjáinn til að sýna stýringuna og síðan á

.

Myndskeið spilað

1

Opnaðu Myndir flipann eða Albúmin mín flipann í albúminu.

2

Finndu myndskeiðið sem þú vilt opna með því að nota töflu- eða listaskjáinn.

3

Pikkaðu á myndskeiðið til að spila það.

4

Ef spilunarstýringin birtist ekki pikkarðu á skjáinn til að sýna þau. Til að fela

stýringarnar pikkarðu aftur á skjáinn.

Hlé á myndskeiði

1

Þegar myndskeið er spilað skaltu pikka á skjáinn til að birta stýritakkana.

2

Bankaðu á .

Til að spóla myndskeiði áfram eða til baka

1

Þegar myndskeið er spilað skaltu pikka á skjáinn til að birta stýritakkana.

2

Dragðu vinnslustikumerkinu til vinstri til að spóla til baka eða til hægri til að

spóla áfram.

Til að stilla hljóðstyrk myndskeiðs

Ýttu á hljóðstyrkstakkann.